Kennsla með nýrri hugsun

Með Sunnevu 




Margir verða hissa þegar þeir átta sig á því hversu mörg einkenni geta tengst langvarandi streitu. Hún hefur ekki aðeins áhrif á andlega líðan heldur einnig svefn, einbeitingu, orku, ónæmiskerfi og líkamlega heilsu —  Talið er að stór hluti þeirra sem leita til lækna glími við einkenni sem tengjast streitu eða versna af veikindum vegna hennar.


Góðu fréttirnar eru þær að það er hægt að grípa inn í áður en streitan verður að langvarandi veikindum eða þroti. 

Hversu oft hefur þú fundið fyrir því að vera orkulítil og uppgefin eftir venjulegan vinnudag? Þá er þetta námskeið fyrir þig.


Athugið að hægt er að sækja um allt að 100% endurgreiðslu fyrir námskeiðinu úr A-hluta endurmenntunarsjóðs FG og SÍ (staðfest frá KÍ) hægt að athuga hjá öðrum stéttarfélögum annarra starfshópa.


                                                      Skráning hér



Ég hjálpa kennurum að gera breytingar á sínu lífi tengdar álagi og streitu svo þeir finni fyrir öryggi og ró inn í skólastofunni án þess að skólakerfið sjálft breytist.


Ef þú vilt skilja betur hvað gerist í líkamanum og taugakerfinu undir álagi og læra hagnýtar leiðir til að draga úr streitu, setja mörk og efla seigluna og fl. þá langar mig að bjóða þér með í vegferð.


Námskeiðið er hannað sérstaklega fyrir kennara og fagfólk í skólum þar sem við vinnum með:







Sveigjanlegt fyrirkomulag: Námskeiðið er kennt í gegnum netið í beinu streymi, en þú færð einnig fullan aðgang að innri vef þar sem upptökur og efni verða aðgengileg í 6 mánuði, þannig að þú getir horft þegar þér hentar. 



Ef þú finnur að aðstæður þínar eru nú þegar orðnar yfirþyrmandi eða þú telur þig frekar þurfa persónulega leiðsögn (einkatími í Lífsþjálfun) í einrúmi, ertu alltaf velkomin/n að heyra í mér. Stundum er besta skrefið einfaldlega að fá stuðning og finna út hvaða leið hentar þér best til þess að gera breytingar í þínu lífi.


Ég óska þér alls hins besta og vonast til að sjá þig með mér á námskeiðinu!